FME gæti hagsmuna fjármagnseigenda

VR gerir athugasemd við málflutning Fjármálaeftirlitsins og telur aðgerðir sínar …
VR gerir athugasemd við málflutning Fjármálaeftirlitsins og telur aðgerðir sínar í fullu samræmi við lög. Ljósmynd/VR

VR spyr hvort Fjármálaeftirlitið (FME) hyggst gæta hagsmunum lántakaenda með sama hætti og stofnunin gætir hagsmunum fjármagnseigenda, að því er fram kemur í tilkynningu VR til fjölmiðla. Er tilkynningin svar við frétt á vef FME sem sett var fram í tilefni þess VR ákvað að skoða afturköllun umboðs stjórnarmanna í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna.

FME birti á vef sínum að stjórnarmönnum í lífeyrissjóðum sé óheimilt að beita sér fyrir því að sjóðirnir séu nýttir í öðrum tilgangi en þeim sem skýrt er frá í lögum um sjóðina. Telur VR að um „föðurlega áminningu“ til VR sé að ræða.

„Fjármálaeftirlitið hlýtur að eiga að haga sínu eftirliti þannig að hagsmunir neytenda séu varðir. Þegar það bregst, eins og nú er raunin, stígum við inn og látum til okkar taka,“ segir í tilkynningunni.

„Þessa sneið fáum við frá Fjármálaeftirlitinu vegna þeirrar fullkomlega löglegu aðgerðar okkar að draga umboð núverandi stjórnarmanna okkar í Lífeyrissjóði verzlunarmanna til baka og skipa þar nýtt fólk eins og er okkar hlutverk og ábyrgð,“ segir í tilkynningu VR.

Þá segir að stjórnarmenn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna „eru og hafa verið skipaðir af þeim aðilum sem að sjóðnum standa en ekki verið kosnir á ársfundi eða á sjóðsfélagsfundi.“

Lækkun ekki skilað sér til neytenda

Fram kemur að í nýgerðum Lífskjarasamningum var áhersla lögð á vaxtalækkun. „Enda er það ein besta kjarabót íslenskra heimila. Um þetta var almenn sátt í þjóðfélaginu. Þegar stjórnarmenn VR í lífeyrissjóðnum standa að ákvörðun sem gengur þvert gegn þessari sátt og mikilvægu stefnu VR og hækkar vexti á íbúðalánum, þrátt fyrir að vextir á markaði hafa lækkað, situr VR ekki þögult hjá.“

Vísar VR til þess að vextir á markaði hafa lækkað og þeir ekki skilað sér til neytenda í lægri vöxtum íbúðarlána. „Álag banka og lífeyrissjóða hefur bara aukist,“ segir í tilkynningu félagsins og er spurt hvort FME hefur, eða mun, „gera athugasemdir við auknar álögur banka og lífeyrissjóða?“

Þá er jafnframt bent á að í stefnu FME segir að markmið stofnunarinnar sé meðal annars að stuðla að því að fjármálamarkaðurinn njóti trausts og til að gæta hagsmuna almennings. „Hvernig væri nú að Fjármálaeftirlitið sinnti þessum skyldum og gætti hagsmuna lántakenda eins og þeir gæta hagsmuna fjármagnseigenda?“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK