Mesta fjölgun starfa í ferðaþjónustu

Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands um einkennandi atvinnugreinar í ferðaþjónustu fjölgaði …
Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands um einkennandi atvinnugreinar í ferðaþjónustu fjölgaði starfsfólki í þessum greinum um rúmlega 16 þúsund frá árinu 2010 til 2018. mbl.is/Árni Sæberg

Starfsfólki á vinnumarkaði fjölgaði um rúm 40 þúsund frá 2010 til 2018. Mest var fjölgunin í ferðaþjónustu sem skapaði fjögur af hverjum tíu störfum sem urðu til á þessum átta árum. Þetta kemur fram í nýrri hagsjá Landsbankans.

Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands um einkennandi atvinnugreinar í ferðaþjónustu fjölgaði starfsfólki í þessum greinum um rúmlega 16 þúsund frá árinu 2010 til 2018 sé tekið mið af meðaltölum áranna. Mest var fjölgunin í rekstri gististaða og veitingasölu og -þjónustu.

Nokkur fækkun starfsfólks var í greininni milli 2008 og 2009 en svo mikil og stöðug fjölgun allt fram til ársins 2018. Meðalfjölgun á ári á öllu tímabilinu var 8,7% og frá árinu 2010 fram til 2018 var meðalfjölgunin á ári 11,6%.

Sé litið á fyrstu þrjá mánuði ársins 2018 og 2019 fækkaði um u.þ.b. 630 í þessum greinum, fyrst og fremst í rekstri gististaða. WOW air var enn í rekstri fyrstu þrjá mánuði ársins 2019 þannig að áhrifa gjaldþrots félagsins gætir ekki í þessum tölum.

Nokkur fækkun starfsfólks var í greininni milli 2008 og 2009 …
Nokkur fækkun starfsfólks var í greininni milli 2008 og 2009 en svo mikil og stöðug fjölgun allt fram til ársins 2018.

Næstmest fjölgun í byggingarstarfsemi

Fjölgun var næstmest í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, um 5.700 manns, en frá 2008 til 2010 hafði starfsfólki í greininni fækkað um helming, úr 15.000 manns niður í 7.500.

Rekstur ferðaskrifstofa og tengd starfsemi var með þriðju mestu fjölgunina og þar á eftir komu flutningar með flugi og smásöluverslun. Þær níu greinar sem voru með mesta fjölgun starfa á þessu tímabili skiluðu um 27.500 nýjum störfum, eða tæplega 70% nýrra starfa í hagkerfinu á þessum tíma.

Mest fækkun í fjármálaþjónustu

Langmesta fækkun starfa á milli áranna 2010 og 2018 var í fjármálaþjónustu (án tryggingarfélaga og lífeyrissjóða) en þar fækkaði um 1.100 manns, til viðbótar við fækkun um 1.300 manns á tímabilinu 2008-2010, eða um 2.400 manns frá 2008-2018.

Næstmesta fækkunin var í útgáfustarfsemi og í fiskveiðum og fiskeldi. Fækkun starfsfólks í þeim 10 greinum þar sem fækkunin var mest var samtals um 2.800 manns frá 2010 til 2018.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK