Sýn braut ekki gegn fjölmiðlalögum

Húsnæði Sýnar.
Húsnæði Sýnar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Póst- og fjarskiptastofnun hefur komist að þeirri niðurstöðu að Sýn hafi ekki brotið gegn fjölmiðlalögum.

Síminn kvartaði til Póst- og fjarskiptastofnunar yfir meintu broti Sýnar. Ágreiningur málsins sneri að því að Síminn hélt því fram að það væri brot á fjölmiðlalögum ef fyrirtæki dreifði myndefni aðeins í gegnum eigið fjarskiptakerfi og að Sýn hefði brotið gegn 5. mgr. 45. gr. fjölmiðlalaga þar sem félagið veitti eða hefði á ákveðnum tímapunktum einungis veitt aðgang að ólínulegu myndefni þess í gegnum eigið IPTV-fjarskiptakerfi.

Sýn hefði ekki haft frumkvæði að því að bjóða efnið til annarra fyrirtækja á markaðnum. Einnig brytu ýmsar markaðsaðgerðir Sýnar að mati Símans í bága við umrædda 5. mgr. 45. gr. fjölmiðlalaga, sem og IP-dreifingargjald sem virtist eingöngu lagt á viðskiptavini fjölmiðlaveitu Sýnar sem væri á IPTV-kerfi Símans.  

Fram kemur í úrskurðinum að í október 2015 hafi ólínuleg myndmiðlun sjónvarpsefnis fjölmiðlaveitu Símans, vegna ákvörðunar Símans þar að lútandi, einungis verið í boði á IPTV-kerfi Símans sjálfs, en ekki á IPTV-kerfi Sýnar. Slík miðlun hafi heldur ekki verið tiltæk eftir öðrum flutningsleiðum. Sama gilti um efnisveitu Símans, Sjónvarp Símans Premium. Þessi ákvörðun Símans leiddi til þess að tugþúsundir viðskiptavina Sýnar, Hringdu, Nova og fleiri félaga, sem nota ljósleiðaranet GR sem undirlag, áttu ekki kost á að nálgast umrætt myndefni, nema að færa sig yfir á undirliggjandi fjarskiptanet dótturfélags Símans, Mílu, eða kaupa heimtaugaþjónustu af bæði Mílu og GR.

Var þetta talið fela í sér alvarlegan aðstöðumun á milli IPTV-sjónvarpsdreifikerfa Símans og Sýnar og talið takmarka valkosti þeirra sem keyptu þjónustu af öðrum þjónustuveitendum. Síminn fékk fyrir vikið sekt fyrir brot á fjölmiðlalögum.

„Sá grundvallarmunur er hins vegar á málunum að ekki er um neins konar synjun á aðgangi að efni [að ræða] þar sem Síminn hafði aldrei óskað eftir því efni sem kvörtunin beindist að og ekki þriðji aðili heldur,“ segir í úrskurðinum sem var birtur í dag.

Var það mat PFS að Sýn hefði ekki beint viðskiptavinum efnisþjónustu sinnar að tengdu fjarskiptafyrirtæki og því ekki brotið gegn 5. mgr. 45. gr. fjölmiðlalaga.  

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK