Benedikt bankastjóri Arion banka

Benedikt Gíslason.
Benedikt Gíslason. Ljósmynd/Aðsend

Stjórn Arion banka hefur ráðið Benedikt Gíslason í starf bankastjóra og mun hann hefja störf 1. júlí næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu. Benedikt hefur umfangsmikla reynslu af störfum á íslenskum fjármálamarkaði undanfarna tvo áratugi.

Stefán Pétursson hefur verið starfandi bankastjóri Arion banka eftir að Höskuldur H. Ólafsson lét af störfum fyrr á árinu. 

Benedikt hóf störf hjá FBA (síðar Íslandsbanka) árið 1998, sinnti margvíslegum stjórnunarstörfum hjá Straumi-Burðarás, var framkvæmdastjóri markaðsviðskipta hjá FL Group og framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs MP banka. Benedikt var varaformaður starfshóps stjórnvalda um afnám fjármagnshafta á árunum 2013-2016. Hann sat í stjórn Kaupþings á árunum 2016-2018. Benedikt hefur verið ráðgjafi Kaupþings í málefnum Arion banka og hefur setið í stjórn bankans frá árinu 2018. Benedikt er verkfræðingur frá Háskóla Íslands, að því er segir í tilkynningunni. 

„Benedikt hefur mjög skýra sýn á framtíð bankans og hvernig eigi að mæta þeim áskorunum sem fjármálafyrirtæki standa frammi fyrir á næstu árum. Rekstrarumhverfi fjármálafyrirtækja um allan heim er að breytast hratt, ekki síst með auknu vægi stafrænnar fjármálaþjónustu. Það er jafnframt mikill styrkur fyrir Arion banka að fá til forystu einstakling með jafnmikla reynslu og þekkingu og Benedikt býr yfir,“ segir Brynjólfur Bjarnason, stjórnarformaður Arion banka, í tilkynningunni.

Benedikt segist í tilkynningunni vera fullur tilhlökkunar að takast á við verkefnið. „Arion banki er gott fyrirtæki og gegnir mikilvægu hlutverki. Ég þekki bankann vel og hlakka til kynnast honum og hans öfluga starfsfólki enn betur. Verkefnið fram undan er að halda áfram að þróa starfsemi og þjónustu bankans og veita viðskiptavinum góða og nútímalega fjármálaþjónustu. Arion banki nýtur ákveðinnar sérstöðu á íslenskum fjármálamarkaði þegar horft er til stóru bankanna þriggja sem almenningshlutafélag skráð í kauphallir á Íslandi og í Svíþjóð.“

Arion banki.
Arion banki. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK