Íslandspóstur hagræðir og flytur

„Það er alveg ljóst að það þarf að skera niður …
„Það er alveg ljóst að það þarf að skera niður kostnað og hagræða á öllum sviðum og undirbúa fyrirtækið undir nýja tíma,“ segir Birgir Jónsson forstjóri Íslandspósts. mbl.is/Eggert

Tveir framkvæmdastjórar láta af störfum hjá Íslandspósti í dag og verða þeir nú þrír í stað fimm. Birgir Jónsson, sem tók nýlega við starfi forstjóra fyrirtækisins, tilkynnti starfsfólki um þessar breytingar og fleiri á starfsmannafundi núna í morgun, en breytingarnar eru liður í endurskipulagningu fyrirtækisins.

Fjármál Íslandspósts hafa verið mikið í umræðunni undanfarin misseri, en skýrsla Ríkisendurskoðunar um Íslandspóst er nú til kynningar á sameiginlegum fundi fjárlaganefndar og stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis og verður gerð opinber eftir að fundi lýkur.

Birgir staðfestir í samtali við mbl.is að þau Anna Katrín Jónsdóttir, framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs, og Tryggvi Þorsteinsson, sem starfað hefur sem framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs, láti af störfum samfara aðgerðum fyrirtækisins.

Fram kemur í fréttatilkynningu frá Íslandspósti að megintilgangur breytinganna sem fyrirhugaðar eru sé að setja þjónustu Íslandspósts í forgang og þá sérstaklega stafræna þjónustu. Skipurit fyrirtækisins er einfaldað, til þess að hraða ákvarðanatöku, tryggja betra upplýsingaflæði og auðvelda innleiðingu breytinga í fyrirtækinu.

Birgir Jónsson tók nýlega við sem forstjóri Íslandspósts.
Birgir Jónsson tók nýlega við sem forstjóri Íslandspósts. Ljósmynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson

„Lykilþættir í umbreytingu hjá Íslandspósti verða dregnir fram í skipuriti þar sem upplýsingatækni, mannauðsmál, viðskiptaþróun og stafræn þjónusta verða að sérstökum einingum sem starfa þvert á rekstrarsviðin undir nýju þróunarsviði sem forstjóri leiðir,“ segir í tilkynningunni.

Stefna á betri liðsheild í nýju húsnæði

Íslandspóstur stefnir einnig á flutninga úr núverandi húsnæði sínu á Stórhöfða og yfir í skrifstofurými í Höfðabakka 9. Birgir segir að það sé mikilvægt mál, bæði sé verið að lækka kostnaðinn og skapa meiri liðsheild, með því að flytja skrifstofustarfsemina í opnara rými.

Hann segir núverandi vinnurými frekar lokað, en að það muni breytast með flutningunum, sem fyrirhugaðir eru í október.

„Það er alveg ljóst að það þarf að skera niður kostnað og hagræða á öllum sviðum og undirbúa fyrirtækið undir nýja tíma,“ segir Birgir við blaðamann.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK