Stjórnvaldssekt lögð á þrotabú WOW air

Umhverfisstofnun hefur lagt stjórnvaldssekt á þrotabú flugfélagsins WOW air að upphæð 3.798.631.250 króna vegna vanrækslu flugrekanda á að standa skil á losunarheimildum fyrir árið 2018. Um er að ræða langhæstu sekt sem Umhverfisstofnun hefur lagt á.

Stofnunin greinir frá þessu í tilkynningu.

Fram kemur, að Ísland sé aðili að viðskiptakerfi Evrópusambandsins um losunarheimildir (ETS) sem miði að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá iðnaði og flugi. Meginreglan sé að sá borgi sem mengi.

„Þeir aðilar sem losa meira en áætlað var þurfa að kaupa sér fleiri losunarheimildir. Fjárhæð stjórnvaldssektarinnar er lögbundin og samsvarar 100 evrum í íslenskum krónum vegna hverrar losunarheimildar, en eitt tonn af CO2 jafngildir einni losunarheimild. Samkvæmt vottaðri losunarskýrslu flugrekandans WOW air var heildarlosun ársins 2018 samtals 278.125 tonn CO2.

Til viðbótar við sektina þarf einnig að standa skil eða kaupa nýjar losunarheimildir sem samsvara losun frá rekstri flugrekanda á árinu 2018,“ segir Umhverfisstofnun.

Þá segir, að síðasti dagur til þess að gera upp losunarheimildir hafi verið 30. apríl 2019 en á þeim tímapunkti hafði engum losunarheimildum verið skilað vegna losunar WOW air undangengið ár. Stjórnvaldssektin var lögð á í samræmi við 43. gr. laga nr. 70/2012 um loftslagsmál og tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB.

Tekið er fram að þrotabú WOW air hafi rétt á að skjóta ákvörðuninni til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins innan þriggja mánaða frá móttöku hennar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK