Tor Arne Berg nýr forstjóri Fjarðaáls

Tor Arne Berg.
Tor Arne Berg. Ljósmynd/Aðsend

Tor Arne Berg mun taka við stöðu forstjóra Alcoa Fjarðaáls um mánaðamótin september-október.

Frá árinu 2017 er Tor Arne búinn að starfa sem forstjóri Lista í Noregi og þar á undan stýrði hann starfsemi steypuskála í Evrópu og Ástralíu. Í því starfi var hann m.a. yfirmaður framkvæmdastjóra steypuskála hjá Fjarðaáli, að því er kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Tor Arne hefur starfað hjá Alcoa frá árinu 2011 og unnið fjölbreytt störf fyrir fyrirtækið. Meðal annars hefur hann verið framkvæmdastjóri steypuskála hjá Lista, svo og framkvæmdastjóri innkaupa þar. Hann mun yfirgefa stöðu sína sem forstjóri Lista þegar hann gengur til liðs við Fjarðaál. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK