Landsréttur hafnar kröfu Isavia

TF-GPA, vél ALC af gerðinni Airbus A321, flaug burt 19. …
TF-GPA, vél ALC af gerðinni Airbus A321, flaug burt 19. júlí. mbl.is/​Hari

Landsréttur hafnaði fyrir helgi kröfu Isavia þar sem þess var krafist að úrskurður Héraðsdóms Reykjaness í deilunni við ALC yrði felldur úr gildi. Héraðsdómur úrskurðaði um miðjan júlí að Isavia skyldi afhenda ALC Airbusþotu sem hafði verið kyrrsett á Keflavíkurflugvelli.

Frá þessu er greint á vef RÚV í kvöld.

Héraðsdóm­ur úrskurðaði 17. júlí að ALC þyrfti aðeins að greiða þá upp­hæð sem væri tengd vél­inni en ekki all­ar skuld­ir annarra flug­véla á veg­um WOW air við Isa­via. ALC var talið hafa sýnt fram á greiðslu allra skulda sem tengd­ar voru vél­inni og því voru fé­lag­inu veitt umráð yfir vél­inni. 

Vélinni var flogið af landi brott tveimur dögum síðar, eða 19. júlí.

Að mati Landsréttar hefur Isavia ekki lögvarða hagsmuni af því að fá niðurstöðu héraðsdóms hnekkt vegna þess að ALC hefur fengið farþegaþotuna sína. Þeim hluta var vísað frá dómi.

Dómstólnum þótti heldur ekki ástæða til að fjalla um þá niðurstöðu héraðsdóms að málskot fresti ekki réttaráhrifum úrskurðarins og var því einnig vísað frá dómi.

Ekki er ljóst hver næstu skref eru en ALC mun að öllum líkindum höfða skaðabótamál á hendur Isavia. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK