Rannveig og Unnur varaseðlabankastjórar

Rannveig Sigurðardóttir og Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri FME.
Rannveig Sigurðardóttir og Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri FME. Samsett mynd

Rannveig Sigurðardóttir aðstoðarseðlabankastjóri og Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri FME, hafa verið fluttar í starf varaseðlabankastjóra.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

Þar segir að í nýjum lögum um Seðlabanka Íslands, sem samþykkt voru í júní, sé kveðið á um að skipaðir verði þrír varaseðlabankastjórar til fimm ára í senn. Einn varaseðlabankastjórinn leiði málefni sem varða peningastefnu, annar málefni sem varða fjármálastöðugleika og sá þriðji málefni sem varða fjármálaeftirlit.

Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands. mbl.is/Kristinn Magnússon


„Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur flutt Rannveigu Sigurðardóttur í starf varaseðlabankastjóra peningastefnu frá og með 1. janúar 2020 með hliðsjón af bráðabirgðaákvæði nýju laganna. Þar kemur fram að embætti aðstoðarseðlabankastjóra verði lagt niður þegar lögin öðlast gildi um næstu áramót og að forsætisráðherra sé heimilt án auglýsingar að flytja núverandi aðstoðarseðlabankastjóra í nýtt embætti varaseðlabankastjóra.

Þá hefur Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, flutt Unni Gunnarsdóttur í starf varaseðlabankastjóra fjármálaeftirlits frá og með 1. janúar 2020 með hliðsjón af bráðabirgðaákvæði laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Þar kemur fram að embætti forstjóra Fjármálaeftirlitsins verði lagt niður þegar sameining Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins öðlast gildi um næstu áramót og að fjármála- og efnahagsráðherra sé heimilt án auglýsingar að flytja forstjóra Fjármálaeftirlitsins í nýtt embætti varaseðlabankastjóra fjármálaeftirlits,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK