Hlutabréf Icelandair hafa hækkað um 0,85% í verði það sem af er degi í Kauphöll Íslands og voru síðustu viðskipti með bréf flugfélagsins á genginu 5,92.
Undanfarna þrjá mánuði hefur verð hlutabréfa Icelandair lækkað um 43,35% og ef horft er til sex mánaða nemur lækkunin 40,32%. Icelandair tapaði 11 milljörðum á fyrri hluta ársins.
Icelandair sagði upp 87 flugmönnum undir lok september og kom fram í tilkynningu að kyrrsetning Boeing 737 MAX-flugvéla Icelandair hafi haft neikvæð áhrif á rekstur félagsins sem og flugáætlun í vetur.
Fram kemur enn fremur að kjarasamningurinn kveði á um að samningsbundin launahækkun, sem taka átti gildi 1. október, frestast til 1. apríl 2020 og engar aðrar launahækkanir munu eiga sér stað á tímabilinu.