Fleiri launagreiðendur en færri launþegar

Frá október 2018 til september 2019 voru að jafnaði 18.536 launagreiðendur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 244 (1,3%) frá síðustu 12 mánuðum þar á undan. Á sama tímabili greiddu launagreiðendur að meðaltali um 194.300 einstaklingum laun sem er aukning um 900 (0,5%) samanborið við 12 mánaða tímabil ári fyrr.

Í september 2019 voru um 131.800 launþegar í viðskiptahagkerfinu og hefur þeim fækkað um 5.300 (-3,8%) samanborið við september 2018. Á sama tímabili hefur launþegum í heild fækkað um 2.000 (-1,0%). Í helstu atvinnugreinum, sem teljast ekki til viðskiptahagkerfisins, fjölgaði launþegum í „opinberri stjórnsýslu og fræðslustarsemi“ um 2.900 (+6,9%) og í „heilbrigðis- og umönnunarþjónustu“ um 800 (+4,4%), samkvæmt frétt á vef Hagstofu Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK