Fljúga hálftómum vélum

Talið er að önnur flugfélög hafi gripið til sama ráðs, …
Talið er að önnur flugfélög hafi gripið til sama ráðs, jafnvel talað um að þeir fljúgi svokölluðum „draugavélum“ með engum farþegum um borð í því skyni að missa ekki sín leyfi á mikilvægum flugvöllum. AFP

Talsmenn flugfélagsins Virgin Atlantic hafa staðfest að þeir hafi neyðst til að halda úti áætlunarflugi þar sem vélar hafa verið hálftómar vegna afbókana í kjölfar útbreiðslu kórónuveirunnar. 

Virgin Atlantic heldur vélunum á lofti í þeim tilgangi að halda þeim lendingarleyfum sem félagið á á stórum flugvöllum á borð við Heathrow í London í Bretlandi, að því er segir á vef BBC. 

Samkvæmt evrópskri löggjöf þurfa flugfélög að skila inn leyfum ef áætlunarflug er ekki í gangi. 

Grant Shapps, samgöngumálaráðherra Bretlands, hefur biðlað til framkvæmdastjórnar ESB um að slaka á þessum kröfum um leyfin á meðan baráttan við útbreiðslu kórónuveirunnar stendur sem hæst. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK