Ferðamenn eyddu 284 milljörðum hér í fyrra

Ferðamenn eyddu háum fjárhæðum hér á landi í fyrra.
Ferðamenn eyddu háum fjárhæðum hér á landi í fyrra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Einkaneysluútgjöld erlendra ferðamanna hér á landi námu samtals um 284 milljörðum króna á árinu 2019. Það samsvarar um 21,4% af mældri einkaneyslu hér á landi á síðasta ári (heildareinkaneysla að frádregnum einkaneysluútgjöldum Íslendinga erlendis).

Eins og við má búast voru kaup á veitinga- og gistiþjónustu fyrirferðarmestu útgjaldaliðirnir í tilviki erlendra ferðamanna en þau vógu um 38,4% af heildareinkaneysluútgjöldum þeirra hér á landi á síðasta ári eða rúmlega 109 milljörðum króna á verðlagi ársins. Þar undir fellur bæði gistiþjónusta og kaup á mat og drykk á veitingahúsum.

Tómstundir og menning er næststærsti neysluflokkur erlendra ferðamanna en hann inniheldur m.a. kaup á ýmiss konar afþreyingu sem að öllu jöfnu er veigamikill þáttur í útgjöldum ferðamanna, s.s. aðgangseyrir inn á bað- og sundstaði, skoðunarferðir og kaup á skipulögðum pakkaferðum.

Undir liðnum ferðir og flutningar eru útgjöld tengd samgöngum og þar falla m.a. undir útgjöld vegna leigu á bifreiðum og aðrar greiðslur fyrir samgöngutengda þjónustu, s.s. rútuferðir og kaup á eldsneyti. Alls námu útgjöld erlendra ferðamanna tengd slíkri þjónustu um 45 milljörðum á síðasta ári eða sem nemur um 15,8% af heildareinkaneyslu erlendra ferðamanna hér á landi, að því er segir á vef Hagstofu Íslands. 

Tölurnar má skoða nánar hér

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK