Vöxtur í byggingu nýrra íbúða í Reykjavík

Árið 2018 var metár í byggingu nýrra íbúða í Reykjavík …
Árið 2018 var metár í byggingu nýrra íbúða í Reykjavík en á því ári hófst bygging á 1.417 íbúðum í Reykjavík. mbl.is/Árni Sæberg

Samtals var hafin bygging 646 nýrra íbúða  í Reykjavík ef litið er á útgefin byggingarleyfi á þessu ári frá janúar til júlí.  Íbúðirnar eru flestar í fjölbýli eða 631, tíu íbúðir eru í tvíbýlishúsi og fimm einbýli.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkuborg.

Þar segir, að á árinu 2019 hafi 846 nýjar íbúðir farið í byggingu og því verði nýbyggingar að öllum líkindum fleiri í ár en í fyrra. Samtals hafi bygging hafist á 5.680 nýjum íbúðum frá ársbyrjun 2015 og það sé mesta uppbyggingartímabil nýrra íbúða í Reykjavík í áratugi.

„Árið 2018 var metár í byggingu nýrra íbúða í Reykjavík en á því ári hófst bygging á 1.417 íbúðum í Reykjavík skv. útgefnum byggingarleyfum. Heildarfjöldi íbúðaeininga er hátt í 54.000 í borginni í dag.

Mesta samdráttarskeið í byggingu nýrra íbúða í Reykjavík var frá 2009 til 2011 en þá var hafin smíði á samtals 282 íbúðum yfir tímabilið og þar af einungis tíu íbúðir árið 2010,“ segir ennfremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK