Loka álverum á Nýja-Sjálandi

Álverið í Straumsvík.
Álverið í Straumsvík. mbl.is/Kristinn Magnússon

Rio Tinto ætlar að loka álverum sínum í Nýja-Sjálandi á næsta ári vegna þess hve hár orkukostnaðurinn er og vegna þess hversu erfiðar aðstæður eru í áliðnaði framundan. 

Álframleiðslu Rio Tinto, Tiwai Point og New Zealand Aluminium Smelters (NZAS) verður lokað 31. ágúst 2021 og er þetta í samræmi við endurskoðun á rekstri álvera fyrirtækisins sem hófst í október í fyrra. Árið 2014 var greint frá því að árið á undan hafi  nýsjálenskir skattgreiðendur neyðst til að reiða fram þrjátíu milljónir dala til dótturfélags Rio Tinto í Nýja-Sjálandi. Fram kom í nýsjálenskum fjölmiðlum að félagið hafi hótað því að loka álverinu Tiwai Point í suðurhluta landsins ef það fengi ekki orku á lægra verði.

„Þrátt fyrir ábendingar fjármálaráðuneytisins um að það væri ekki skynsamlegt að niðurgreiða orkuna til álversins var það að lokum samþykkt. Benti fjármálaráðuneytið meðal annars á að niðurgreiðslan fæli í sér mikla tilfærslu á fjármagni frá Ný-Sjálendingum til hluthafa Rio Tinto,“ sagði í frétt Morgunblaðsins árið 2014 af málinu. 

Í tilkynningu frá Rio Tinto nú kemur fram að helstu ástæður ákvörðunarinnar um að hætta álframleiðslu á Nýja-Sjálandi sé hár rafmagnskostnaður og horfur til skemmri tíma á álmarkaði. 

Rio Tinto á og rekur álverið í Straumsvík og tilkynnti í febrúar að félagið ætlaði að hefja sér­staka end­ur­skoðun á starf­semi ál­vers­ins í Straums­vík (ISAL) til að meta rekstr­ar­hæfi þess til framtíðar og leita leiða til þess að bæta sam­keppn­is­stöðu þess.

Í fyr­ir­hugaðri end­ur­skoðun verða all­ar leiðir skoðaðar, þar á meðal frek­ari fram­leiðslum­innk­un og mögu­lega lok­un. End­ur­skoðun­ar­ferl­inu verður lokið á fyrri helm­ingi árs 2020. Vegna ta­prekstr­ar hef­ur fram­leiðsla ISAL þegar verið minnkuð í 85 pró­sent af af­kasta­getu ál­vers­ins. ISAL er að fullu í eigu Rio Tinto. Í Straums­vík starfa um 500 manns.

Rio Tinto á 79,36% hlut í NZAS og japanska fyrirtækið Sumitomo Chemical á 20,64%. Á fyrstu þremur mánuðum ársins voru þar framleidd 67 þúsund tonn og 279 þúsund tonn í fyrra. NZAS var rekið með tapi í fyrra.

Álverið í Straumsvík framleiddi 45 þúsund tonn á fyrstu þremur mánuðum ársins og í fyrra voru þar framleidd 184 þúsund tonn af súráli.

Sjá nánar hér

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK