Kristinn Ingi til Carbfix

Kristinn Ingi er genginn til liðs við Carbfix.
Kristinn Ingi er genginn til liðs við Carbfix.

Kristinn Ingi Lárusson hefur verið ráðinn til  Carbfix, dótturfyrirtækis Orkuveitu Reykjavíkur, þar sem hann mun leiða viðskiptaþróun,stefnumótun og markaðssókn þess á erlendri grundu. Carbfix er þekkingarfyrirtæki sem veitir ráðgjöf og þjónustu á sviði kolefnisföngunar með það að markmiði að sporna gegn loftslagsvá. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. 

Á árunum 1998 – 2005 starfaði Kristinn hjá SPRON við útlán til stærri fyrirtækja, eignastýringu og fjárfestingabankastarfsemi. Frá 2005 til 2013 var Kristinn forstöðumaður viðskiptaþróunar Símans og síðar móðurfélagsins SKIPTA. 

Undanfarin sjö ár hefur hann verið framkvæmdastjóri ON Waves sem er alþjóðlegt fjarskiptafyrirtæki sem þjónar skipaflotum um allan heim. Kristinn hefur jafnframt setið víða í stjórnum fyrirtækja, bæði hérlendis sem erlendis, á sviði nýsköpunar, fjarskipta og fjármála.    

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK