Ætla að skapa 20% af gjaldeyristekjum Íslands

Sesselja Ómarsdóttir, framkvæmdastjóri lyfjagreiningardeildar Alvotech,
Sesselja Ómarsdóttir, framkvæmdastjóri lyfjagreiningardeildar Alvotech, Ljósmynd/Birgir Ísleifur

Samkvæmt áætlunum íslenska lyfjafyrirtækisins Alvotech er gert ráð fyrir að velta fyrirtækisins verði 5% af vergri landsframleiðslu árið 2027 og 20% af gjaldeyristekjum þjóðarinnar. Þetta kom fram í máli Sesselju Ómarsdóttur, framkvæmdastjóra lyfjagreiningardeildar Alvotech, á Iðnþingi í dag.

Miðað við gjaldeyristekjur ársins 2018 þýðir það að Alvotech áformar gjaldeyristekjur upp á rúmlega 200 milljarða.

Sesselja sagði að þótt þetta virkaði sem háleitt markmið þyrfti að horfa til þess að lyfjageirinn velti gríðarlegum upphæðum. Þá sagði hún rétt að horfa til þess að þessi iðnaður væri að mestu byggður upp á hugvitinu, finna réttar frumur til að ræka og ná prótínum í lyfin. Þetta væri því ekki iðnaður með takmarkaða auðlind.

Hátæknisetur Alvotech í Vatnsmýrinni.
Hátæknisetur Alvotech í Vatnsmýrinni. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK