Bjuggu til stafrænt listagallerí

Ellert Lárusson og Pétur Jónsson stofnendur Apollo Art.
Ellert Lárusson og Pétur Jónsson stofnendur Apollo Art. Ljósmynd/Aðsend

Tveir ungir frumkvöðlar hafa stofnað sölusvæði og markaðstorg fyrir íslenska myndlist, einskonar stafrænt gallerí undir nafninu Apollo Art. Það eru þeir Pétur Jónsson og Ellert Lárusson sem standa að Apollo Art.

„Við sáum að það væri vöntun á vettvangi þar sem listunnendur geta á einum stað skoðað úrval margra listamanna og keypt beint af þeim sem þeim lýst best á. Við erum eiginlega að færa myndlistaheiminn inn í nútímann hvað sölu og markaðssetningu varðar,“ segir Ellert. 

„Það getur verið dýrt að selja í gegnum gallerí, þar þurfa listaverkin að vera til á staðnum og tenging þess sem kaupir og listamannsins er lítil. Á Apollo art velur fólk verkin á sínum tíma á vefnum og finnur það sem það vill kaupa. Listamaðurinn er með öll verk hjá sér og sér sjálfur um að afhenda kaupandanum verkið. Þetta hefur strax mælst mjög vel fyrir og eru um 50 listamenn nú þegar byrjaðir að selja í gegnum Apollo art og salan fór strax í gang á fyrsta degi,” Segir Ellert, en Apollo Art opnaði þann 1. október síðastliðinn.

Á vettvanginum eru viðskiptin beint á milli listkaupandans og listamannsins en ekki við t.d. gallerí. Með þessu fær listamaðurinn mun meira út úr viðskiptunum ásamt því að aukin þægindi skapast fyrir þá sem vilja kaupa samtímalist.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK