Norlandair flýgur til Grænlands

Flugvél Norlandair, Beechcraft King Air 200.
Flugvél Norlandair, Beechcraft King Air 200. mbl.is/Sigurður Bogi

Flugfélagið Norlandair hefur skrifað undir samning við grænlensku heimastjórnina um flug frá Íslandi til Nerlerit Inaat (Scoresbysund) tvisvar í viku. Samningurinn er til 6 ára en framlengjanlegur um fjögur ár á þeim tímapunkti.

Samningurinn nær til 104 fluga á ári, þar af 24 flug frá Reykjavík en 80 flug frá Akureyri, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Þar segir að Norlandair hafi þjónustað íbúa á austurströnd Grænlands um áratuga skeið, auk þess að fljúga fyrir alþjóðlegar rannsóknastofnanir og erlend ríki, s.s. danska herinn.

Stolt og ánægð yfir traustinu

Félagið hefur haldið uppi áætlun tvisvar í viku undanfarin ár frá Akureyri. Flug frá Reykjavík einnig er viðbót við fyrri samning, auk þess sem í honum er opnað á flug milli staða á Grænlandi.

„Við erum stolt og ánægð yfir þessu mikla trausti og hlökkum til framhaldsins. Samstarf Norlandair og heimastjórnarinnar á sér djúpar rætur og hefur ávallt verið farsælt. Við hlökkum til að takast á við næstu ár,“ er haft eftir Friðriki Adolfssyni, framkvæmdastjóra Norlandair.

„Við munum sinna þessu flugi með DHC-6 Twin Otter og B200 King Air, ásamt DASH-8 flugvél sem til stendur að innleiða. Breidd flugvélaflotans og sérhæfð þjálfun flugmanna gerir okkur kleyft að fljúga við mjög krefjandi aðstæður og þjónusta þetta harðbýla svæði á öruggan hátt“.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK