50% söluaukning á jólabjór

Fyrir ári síðan var komu jólabjórs fagnað með samkundu. Því …
Fyrir ári síðan var komu jólabjórs fagnað með samkundu. Því er ekki að fagna í ár. Kristinn Magnússon

50% söluaukning hefur verið á jólabjór í ÁTVR samanborið við síðasta ár og hafa alls 613 þúsund lítarar bjórs verið seldir síðan um miðjan nóvember.

Þó ber að taka með í reikninginn að sala á bjórnum hófst viku fyrr í ár en á síðast ári. Samkvæmt upplýsingum frá ÁTVR höfðu til samanburðar selst 408 þúsund lítrar  á sama tíma í fyrra.

Sigrún Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR, segir að þrátt fyrir að salan hafi hafist viku fyrr núna sé augljós söluaukning á jólabjórnum samanborið við söluna 2019. Jólabjórinn frá Tuborg er langsöluhæsti bjórinn og fer nærri að hann sé um helmingur af sölu alls jólabjórs. 

Fimm vinsælustu tegundirnar eru: 

  1. Tuborg Julebryg - 312 þúsund lítrar - 51% hlutdeild 
  2. Viking jólabjór - 50 þúsund lítrar - 8% hlutdeild 
  3. Thule jólabjór - 33 þúsund lítrar - 5% hlutdeild 
  4. Jóla gull -32 þúsund lítrar - 5% hlutdeild 
  5. Jóla kaldi - 25 þúsund lítrar - 4% hlutdeild 

Áfengissala vaxið um rúm 17% 

Áfengissala fyrstu ellefu mánuði ársins er umtalsvert meiri en hún var árið 2019 og munar þar rúmum 17%. Að sögn Sigrúnar helgast það að líkindum af því að fleiri Íslendingar eru á landinu en undanfarin ár. Veitinga- og skemmtistaðir hafa að miklu leyti verið lokaðir eða með skerta opnunartíma auk þess sem Fríhöfnin hefur ekki verið virk í sölu áfengis.

Sala á áfengi hefur vasið um 17,2% á milli ára.
Sala á áfengi hefur vasið um 17,2% á milli ára.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK