Með augun á boltanum

Athafnamaðurinn Jón Ásgeir Jóhannesson er farinn að láta aftur að …
Athafnamaðurinn Jón Ásgeir Jóhannesson er farinn að láta aftur að sérkveða í íslensku viðskiptalífi.

Athafnamaðurinn Jón Ásgeir Jóhannesson er farinn að láta aftur að sér kveða í íslensku viðskiptalífi. Hann hefur leitt hóp fjárfesta sem nú hafa náð meirihluta í olíufélaginu Skeljungi.

Sjálfur segist Jón Ásgeir sjá tækifæri í rekstri félagsins, en hörkuvinna sé fram undan. Endurhugsa þurfi reksturinn og aðlaga hann breyttum aðstæðum. Til greina kemur að selja dótturfélag Skeljungs í Færeyjum P/F Magn, en fjármagn úr sölunni getur jafnframt nýst til annarra fjárfestinga erlendis. Jón Ásgeir kveðst horfa til Bretlands þar sem hann er með sterk tengsl, að því er fram kemur í samtali við hann í ViðskiptaMogganum í dag.

Það var nístingskuldi og örfáir á ferli í miðborg Reykjavíkur þegar blaðamann bar að garði við 101 Hótel á Hverfisgötu. Engir ferðamenn voru á hótelinu sökum heimsfaraldursins, en í fáguðu og nútímalegu anddyrinu stóð athafnamaðurinn Jón Ásgeir Jóhannesson. Eftir stutt samtal héldum við inn á veitingastað hótelsins og fengum okkur sæti. Hótelið er í eigu viðskiptakonunnar Ingibjargar Stefaníu Pálmadóttur, eiginkonu hans, og hefur verið vinsælt meðal ferðamanna, sérstaklega Breta og Bandaríkjamanna.

Jón Ásgeir hefur haft í nógu að snúast undanfarnar vikur, en hann hefur leitt hóp fjárfesta sem fyrir áramót lögðu fram yfirtökutilboð í olíufélagið Skeljung hf. Hópurinn sem um ræðir ber heitið Strengur og tryggði sér í síðustu viku meirihluta í félaginu, eða atkvæðisrétt yfir 50,06% hlutafjár að teknu tilliti til eigin hluta. Auk þess að leiða fjárfestahópinn hefur Jón Ásgeir gegnt stjórnarformennsku í félaginu.

Ítarlega er rætt við Jón Ásgeir í ViðskiptaMogganum í dag.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK