Heildareignir jukust um 145 milljarða

Lífeyrissjóður verslunarmanna er í Húsi verslunarinnar.
Lífeyrissjóður verslunarmanna er í Húsi verslunarinnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Heildareignir Lífeyrissjóðs verzlunarmanna námu 1.013 milljörðum króna um áramót og jukust þær um 145 milljarða króna á síðasta ári. Þar af námu fjárfestingatekjur 130 milljörðum króna.

Sjóðfélögum á lífeyri fjölgaði áfram á árinu og voru um 20 þúsund í lok árs samanborið við 19 þúsund árið áður.

„Ávöxtun eigna var góð líkt og undanfarin ár og er sjóðurinn vel í stakk búinn til að takast á við þær áskoranir sem fylgja hækkandi lífaldri þjóðarinnar,“ segir í tilkynningu, þar sem fram kemur að reksturinn hafi gengið vel og afkoma eignasafna verið góð þrátt fyrir krefjandi aðstæður vegna heimsfaraldursins.

Ársskýrsla LV verður birt í aðdraganda ársfundar 23. mars. Þar eru ítarlegri upplýsingar um starfsemi sjóðsins.

Helstu tölur fyrir árið 2020:

  • Lífeyrisgreiðslur jukust um 12,5% og voru alls 18 milljarðar króna úr sameignardeild til 20 þúsund lífeyrisþega, eða 7,4% fleiri en árið áður
  • 48 þúsund sjóðfélagar greiddu iðgjöld til sjóðsins
  • Tryggingafræðileg staða Lífeyrissjóðs verzlunarmanna er jákvæð sem nemur 10,9%. Sú staða þýðir að sjóðurinn er vel í stakk búinn til að takast á við þá áskorun sem leiðir af hækkandi aldri þjóðarinnar og þar með að sjóðfélagar fá greiddan lífeyri lengur en áður
  • Heildareignir voru 1.013 milljarðar króna í lok árs 2020, eða sem nemur 145 milljörðum meiri en árið áður
  • Langtímaávöxtun sjóðsins er áfram góð, fimm ára árleg meðalávöxtun er 6,2%, tíu ára meðalávöxtun 6,7% og 20 ára meðalávöxtun er 4,5%
  • Ávöxtun eigna 2020 nam 14,7% sem samsvarar 10,8% hreinni raunávöxtun. Fjárfestingatekjur á árinu voru 130 milljarðar
  • Vægi erlendra eigna hækkaði og var í lok ársins 43% eignasafnsins
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK