Galtalækjarskógur falur fyrir 200 milljónir

Loftmynd af Galtalækjarskógi.
Loftmynd af Galtalækjarskógi. Ljósmynd af fasteignavef mbl.is

Galtalækjarskógur hefur verið auglýstur til sölu á 200 milljónir króna. Landið komst í eigu þrotabús Steingríms Wernerssonar við nauðungarsölu sl. haust. Að sögn Helga Birgissonar hrl. skiptastjóra þrotabúsins seldu bindindissamtökin I.O.G.T. félagi í eigu bræðranna Karls Emils og Steingríms Wernerssona landið árið 2007.

Í fréttatilkynningu kemur fram að Galtalækjarskógur er samtals 84,1 hektara náttúruperla sem liggur m.a að Ytri-Rangá við rætur Heklu. „Gott útsýni er frá svæðinu m.a. til Heklu. Landið er allt vel gróið. Galtalækjarskógur var landsþekkt tjald- og útivistasvæði á sínum tíma og svæðið býður upp á margvíslega möguleika. Í skóginum eru margar fallegar gönguleiðir.

Töluvert er af byggingum á landinu og eru þær í misjöfnu ástandi. Þær helstu eru landvarðarhúsið Langahlíð, sem er 250 fermetra timburhús á steyptri plötu, veitingasalan Merkihvoll, 245 fermetrar, Hekla útiskemma, 200 fermetrar, og Múli sumarhús, 54 fermetrar.

Líklegt er að fjárfestar tengdir ferðaþjónustu hafi áhuga á landinu, en landið gæti einnig hentað frístundabændum. Lögmenn Suðurlandi er með landið til sölu,“ segir ennfremur í tilkynningu.

Sjá nánar á fasteignavef mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK