VÍS hlýtur alþjóðleg verðlaun fyrir nýsköpun

Tryggingafélagið VÍS hlaut á dögunum erlend verðlaun fyrir eftirtektarverða nýsköpun í þjónustu og vöruþróun á meðal tryggingafélaga á Íslandi á árinu 2021.

Fyrr á árinu kynnti VÍS ökuvísi til sögunnar þar sem hugmyndin er að umbuna fyrir góðan og öruggan akstur. Umfangsmikil vöruþróun átti sér stað á síðasta ári í  samstarfi við viðskiptavini félagsins en markmiðið með Ökuvísi er að fækka bílslysum á Íslandi samfélaginu til heilla, að því er kemur fram í tilkynningu.

Verðlaunin veitti Global Banking & Finance Review’s sem hefur verðlaunað framúrskarandi fyrirtæki víðs vegar um heiminn frá árinu 2011.

 „Við erum gríðarlega ánægð með hvernig til tókst með Ökuvísi og því er einkar ánægjulegt að fá viðurkenningu sem þessa. Framtíðarsýn félagsins er sú, að verða stafrænt þjónustufyrirtæki og Ökuvísir er mikilvæg varða á þeirri leið. Þessi viðurkenning hvetur okkur því áfram og hvetur okkur líka til þess að halda áfram að breyta því hvernig tryggingar virka,“ segir Helgi Bjarnason, forstjóri VÍS í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK