Álverð komið upp í 3.000 dali á tonnið

Álverð hefur náð nýjum hæðum í ár eftir rýrt ár …
Álverð hefur náð nýjum hæðum í ár eftir rýrt ár í fyrra. Morgunblaðið/Golli

Álverð hefur ekki verið hærra síðan árið 2008 þar sem framboð á málminum hefur dregist saman eftir valdarán í Gíneu sem er auðugt af málmgrýtinu báxíti sem flest ál er unnið upp úr. Verðið stendur nú í þrjúþúsund dollurum fyrir tonnið en meðalverð þess voru 1727 dalir í fyrra.

Á meðan hagkerfi veraldar hafa verið að rétta úr kútnum hefur álverð aukist eins og verð annarrar hrávöru. Greinandi Commerzbank segir framboðsvanda á álmarkaðnum orsaka hækkunina. 

Annað sem veldur þessum miklu verðhækkunum er hærra raforkuverð í Kína sem hefur minnkað framleiðslugetu álvera þar í landi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK