Pósturinn fimmfaldar afköst sín

Pósturinn fimmfaldar afköst sín með nýju flokkunarvélinni Magna.
Pósturinn fimmfaldar afköst sín með nýju flokkunarvélinni Magna. Ljósmynd/Aðsend

Ný flokkunarvél, Magni, hefur verið ræst í póstmiðstöð Póstsins. Hún hefur það að markmiði að hjálpa starfsfólki Póstsins að uppfylla væntingar viðskiptavina um hraða og örugga þjónustu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Póstinum. 

„Frá árinu 2010 hafa innlendar pakkasendingar rúmlega tvöfaldast og sendingar frá útlöndum rúmlega þrefaldast samhliða breyttri kauphegðun Íslendinga þar sem verslun fer að enn stærri hluta en áður fram á netinu og innlend netverslun í miklum vexti,“ er haft eftir Þórhildi Ólöfu Helgadóttur, forstjóra Íslandspósts, í tilkynningunni.

Nauðsynlegt að bregðast við

Í tilkynningunni er haft eftir Þórhildi að nauðsynlegt sé bregðast við þeim breytingum sem skapast hafa í póstþjónustu.

„Nú eru stórir dagar framundan hjá Póstinum, með stórum netverslunardögum og jólum; áætlanir gera ráð fyrir um 50%  fjölgun á innlendum og erlendum vörusendingum síðustu tvo mánuði ársins miðað við aðra mánuði ársins. 

Auk jólavertíðarinnar, sem kallar óhjákvæmilega á mikinn fjölda sendinga, hefur alþjóðleg netverslun bætt við nýjum „hátíðisdögum“ í líf neytenda og netverslana en þrjá stórútsöludaga ber nú upp í nóvember.“

Magni allt að fimmfaldar afköst Trausta

Til að bregðast við þessari aukningu hefur Íslandspóstur fjárfest í nýrri pakkaflokkunarvél. Þegar kom að velja nafn á tækið valdi starfsfólk Póstsins nafnið Magni en áður hafði vélin Trausti séð um flokkun. 
 
„Trausti hafði staðið vel undir nafni og gat flokkað allt að 800 sendingar á klukkutíma en þess má geta að bréfaflokkunarvélin Vanda er enn að störfum hjá Póstinum og flokkar bréfin og jólakortin eins og ekkert sé.

Magni hefur hins vegar allt að fimmfalda afkastagetu á við Trausta og með honum verður öll flokkun víðtækari og snarpari og sendingar munu skila sér hraðar í hinar fjölmörgu afhendingarleiðir Póstsins um allt land, allt eftir þörfum hvers og eins," er haft eftir Þórhildi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK