Styðja við þá sem verða fyrir tjóni

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ríkisstjórnin samþykkti í dag að leggja fyrir Alþingi frumvarp sem heimilar fyrirtækjum í tilteknum flokkum veitingaþjónustu, sem hafa orðið að sæta takmörkunum á opnunartíma vegna kórónuveirufaraldursins, að fresta staðgreiðslu skatta og greiðslu tryggingagjalds.

Auk þess verður umsóknarfrestur vegna almennra viðspyrnustyrkja fyrir nóvember 2021 framlengdur, að því er fram kemur á vef fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

Þá er unnið að frumvarpi um sérstakan veitingastyrk sem sömu fyrirtækjum stendur til boða vegna minni tekna frá desember 2021 út mars 2022. Enn fremur er unnið að framlengingu lokunarstyrkja í ljósi hertra takmarkana, og að auki horft til þess hvar þörf er fyrir stuðning á öðrum sviðum vegna takmarkana næstu vikur.

Loks var í fjárlögum ársins 2022 veitt heimild fyrir greiðslu styrkja til íþrótta- og æskulýðsfélaga sem hafa orðið fyrir tekjutapi vegna viðburða sem fella þurfti niður vegna faraldursins.

Stefnt er að því að frumvarp um skattfrestanir og framlengingu á umsóknarfresti verði lagt fram um leið og Alþingi kemur saman á mánudag, 17. janúar, en frumvarp um veitingastyrk og önnur úrræði nokkrum dögum síðar.

„Við mörkuðum þá stefnu strax í upphafi að styðja við þá sem verða fyrir verulegu tjóni vegna faraldursins og sóttvarnartakmarkana. Þeirri stefnu munum við áfram fylgja eins lengi og þarf. Fyrirhugaðar stuðningsaðgerðir miða að því að draga úr tjóni, tryggja að neikvæð áhrif á atvinnulíf og efnahag vari sem skemmst og skapa aðstæður fyrir öfluga viðspyrnu í kjölfarið,“ segir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK