Orkan hættir að selja bensín við Fellsmúla

Orkan hefur nú þegar fækkað um eina dælu á stöðinni …
Orkan hefur nú þegar fækkað um eina dælu á stöðinni í Fellsmúla og er þar nú aðeins ein dæla sem getur dælt eldsneyti í tvo bíla samtímis. Ljósmynd/Aðsend

Orkan hyggst breyta bensínstöð sinni í Fellsmúla í hleðslustöð fyrir rafknúin ökutæki. Hleðslustöðin verður rekin í samstarfi við ON og er gert ráð fyrir að hún hefji starfsemi fyrir lok ársins 2023.

Í tilkynningu frá Orkunni segir að rekin hafi verið bensínstöð á þessum stað í Fellsmúla allt frá árinu 1971 en það séu yfirvofandi orkuskipti og loftslagsstefna Reykjavíkurborgar, sem kveður á fækkun bensínstöðva, ásamt framtíðarstefnumörkun og vistvænum áherslum Orkunnar sem leiddu til þessarar ákvörðunar.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, Vífill Ingimarsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Orkunnar, og Silja Mist Sigurkarlsdóttir, markaðsstjóri Orku náttúrunnar, undirrituðu samkomulag þessa efnis í dag.  

 Fjölga þurfi hleðslustöðvum

„Sú mikla ánægja sem hefur verið með hleðslustöðvarnar á stöðvum Orkunnar er okkur hvatning til að halda áfram á þessari braut. Við vitum að rafbílum fjölgar nú hratt, þeir voru meira en helmingur seldra bíla á síðasta ári. Þetta þýðir að fjölga þarf hleðslustöðvum og Orkustöðvarnar eru vel staðsettar nærri stofnbrautum og því vinsælar hjá ökumönnum,“ er haft eftir Vífili Ingimarssyni, framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Orkunnar, í tilkynningunni.

Þá kemur fram að Orkan muni halda áfram að þróa þjónustunet sitt á höfuðborgarsvæðinu og verður ný Orkustöð tekin í gagnið við Lambhagaveg í Úlfarsárdal á næstu tveimur árum samhliða breytingunni í Fellsmúla. 

Borgarstjóri ánægður með þróunina

Samstarf Orkunnar og Orku náttúrunnar hófst árið 2017.

Í tilkynningunni segir að í dag megi finna hleðslustöðvar frá ON á átta Orkustöðvum, þrjár í Reykjavík og fimm á landsbyggðinni en stefnt er að fjölgun þeirra samhliða orkuskiptum bílaflotans.  

„Við hjá Orku náttúrunnar fögnum auðvitað þeirri þróun að bensínstöðvum sé að fækka og hleðslustöðvum að fjölga. ON hefur verið leiðandi í orkuskiptunum allt frá því að við settum upp fyrstu hleðslustöðina hér á landi og þetta er rökrétt skref á þeirri vegferð. Við höfum átt gott samstarf við Orkuna og vonandi mun þessi þróun halda áfram, “ er haft eftir Silju Mist Sigurkarlsdóttur, markaðsstjóra Orku náttúrunnar. 

„Ég er mjög ánægður með þessa þróun. Hér eru að koma hleðslustöðvar fyrir rafbíla í stað jarðefnaeldsneytis. Með þessu erum við að færast nær grænni framtíð. Borgin beitir samningum og grænum hvötum til að ná markmiðum í loftslagsmálum og þéttingu byggðar sem þýðir að íbúðahverfin eflast og lífsgæði íbúanna batna,“ er haft eftir Degi B. Eggertssyni borgarstjóra.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK