Íslandsbanki afhendir 56 listaverk

Formleg afhending fór fram í Safnahúsinu sl. mánudag þar sem …
Formleg afhending  fór fram í Safnahúsinu sl. mánudag þar sem  bankastjóri Íslandsbanka Listasafni Íslands og Hörpu Þórsdóttur safnstjóra sérstakar þakkir við aðstoðina og gott samstarf við afhendinguna. Ljósmynd/Aðsend

Íslandsbanki gaf í byrjun vikunnar nokkurn hluta af listaverkasafni bankans til 16 listasafna víðs vegar um landið. Afhent voru 56 verk að þessu sinni, en með því er framfylgt samþykkt hluthafafundar í maí í fyrra um að gefa hluta af listaverkasafni Íslandsbanka.

Fram kemur í tilkynningu frá bankanum, að saga Íslandsbanka nái allt aftur til ársins 1875 og í gegnum tíðina hafi bankinn eignast mörg söguleg og falleg verk.

„Vandað er til verka við að velja þeim stað við afhendingu með það að markmiði að færa söfnum landsins verk og reynt var að horfa til tengsla verkanna í listasögunni í þeirra nærsamfélagi. Söfnin sem taka við gjöfinni eru líka vel í stakk búin til að standa vörð um listasögu Íslands með því að varðveita verkin og sýna þau,“ segir í tilkynningunni. 

 „Það var mikil ánægja og heiður að afhenda þessi 56 listaverk til listasafna víðsvegar um landið við þess fullviss að þessi verk eru komin á góðan stað þar sem landsmenn munu geta  notið til framtíðar. Í gegnum tíðina hefur bankinn með sama hætti afhent verk til varðveitingar sem tengjast ákveðnum byggðarlögum. Listasafn Reykjanesbæjar fékk gefið verk eftir Gunnlaug Blöndal, „Saltfiskstúlkurnar“ og eins afhenti bankinn „Síldarstúlkurnar“ eftir sama listamann aftur heim til Síldarminjasafnsins á Siglufirði,“ er haft eftir Unu Steinsdóttur, framkvæmdastjóra viðskiptabanka. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK