Kristinn framkvæmdastjóri Running tide á Íslandi

Kristinn Árni Lár Hróbjartsson er framkvæmdastjóri alþjóðlega loftslagsfyrirtækisins Running tide …
Kristinn Árni Lár Hróbjartsson er framkvæmdastjóri alþjóðlega loftslagsfyrirtækisins Running tide á Íslandi.

Kristinn Árni Lár Hróbjartsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri alþjóðlega loftslagsfyrirtækisins Running tide á Íslandi og mun hann stýra daglegri starfsemi þess hér á landi. Running tide er bandarískt kolefnisförgunarfyrirtæki sem hyggst rækta fljótandi þörungaskóga á alþjóðlegu hafsvæði og gera út frá Íslandi.

Fyrirtækið var stofnað fyrir fimm árum síðan á austurströnd Bandaríkjanna en hóf nýverið starfsemi á Íslandi fyrir milligöngu Transition labs. Davíð Helgason, fjárfestir og einn stofnandi Unity, og Kjartan Örn Ólafsson, frumkvöðull og tæknifjárfestir, eru á bak við Transition labs. Áformað er að starfsemi Running tide hér á landi fari á fullt strax í sumar. Hún felur í sér heilmikil umsvif í hafnarstarfsemi, framleiðslu og útgerð.

Í tilkynningu vegna ráðningar Kristins Árna segir að hann hafi áður starfað sem yfirmaður vörustjórnunar hjá Sotheby‘s uppboðsfyrirtækinu í New York, þar sem hann leiddi breytingar á skipulagi og tækninotkun þess í samræmi við stefnu nýrra eigenda. Félagið var keypt og afskráð af markaði árið 2019 af franska milljarðamæringnum Patrick Drahi. Þar áður var Kristinn Árni framkvæmdastjóri rekstrar hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Gangverki, ráðgjafi hjá Kolibri og forstöðumaður rekstrar hjá QuizUp. Kristinn Árni er stofnandi og ritstjóri nýsköpunarvefsins Northstack auk þess að vera formaður stjórnar sprota- og nýsköpunarsjóðsins Kríu. Kristinn Árni er með BS-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.

Jafnframt kemur fram að Running tide hafi þróað tækni til að örva náttúrulega hæfni sjávarins til að fjarlægja kolefni varanlega úr andrúmsloftinu. Markmiðið er að bæta lífríki hafsins, skila ávinningnum beint til sjávarplássa og auka sjálfbærni vistkerfa jarðarinnar.

Haft er eftir Kristni Árna að þó mikill munur sé á þessu starfi og því hjá Sotheby‘s, þá sé líka margt sameiginlegt. „Það eru vissulega viðbrigði að fara frá Sotheby‘s, einu elsta fyrirtæki heims sem sérhæfir sig í uppboði á einstökum og sjaldgæfum eignum, yfir í loftslagstækni. Störfin eiga það þó sameiginlegt að fengist er við flókin viðfangsefni sem krefjast góðs skipulags og mannauðs. Í grunninn snýst stjórnun og uppbygging á tækni um fólk, og hvernig hægt er að fá sérfræðinga úr ólíkum áttum – á sviði tækni, hönnunar, rekstrar, fjármála og lögfræði – til að vinna saman til að búa til endaafurð sem er í samræmi við markmið félagsins. Ég bý að þeirri reynslu frá Sotheby‘s að hafa unnið í alþjóðlegu umhverfi, þvert á tímabelti, sérþekkingu, menningu og tungumál sem mun vafalaust nýtast vel í þessu starfi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK