Drífa óskar nýju flugfélagi til hamingju

Vél Niceair lenti á Akureyrarflugvelli í gær.
Vél Niceair lenti á Akureyrarflugvelli í gær. mbl.is/Þorgeir

Drífa Snædal forseti ASÍ hefur óskað nýja akureyska flugfélaginu Niceair til hamingju með sín fyrstu skref en í dag var nýr kjarasamningur milli félagsins og Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ) undirritaður og samþykktur.

Samningurinn, sem er gerður við flugfreyjur og fluþjóna félagsins, gildir til 1. júní 2024 og hefur hann verið kynntur fyrir félagsmönnum. Þeir hafa samþykkt samninginn.

Algildir kjarasamningar um störf flugfreyja og flugþjóna eru ekki til staðar hér á landi og því þarf að semja við hvert flugfélag fyrir sig.

Í tilkynningu frá ASÍ segir að einstaklega ánægjulegt sé að hið nýja flugfélag leggi metnað í að ganga frá kjarasamningum og verja þannig réttindi og kjör síns starfsfólks. Með því móti sé líklegra að hæft og gott starfsfólk fáist til starfa til lengri tíma og að vinnureglur á íslenskum vinnumarkaði séu hafðar fyrir augum.

„Það er með gleði og bjartsýni sem við hjá FFÍ óskum Niceair til hamingju með að hafa tekið á loft. FFÍ fagnar því að Niceair hafi gengið til viðræðna og lokið kjarasamningi við félagið með árangursríkum hætti og bjóðum við nýja félagsmenn hjartanlega velkomna. Viðræðuferlið hefur í alla staði verið farsælt og gott og hlökkum við til áframhaldandi samstarfs,“ segir í tilkynningu FFÍ.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK