Fljúga frá Þýskalandi til Akureyrar og Egilsstaða

Þetta verður í fyrsta sinn sem flugfélagið Condor flýgur til …
Þetta verður í fyrsta sinn sem flugfélagið Condor flýgur til Íslands. Ljósmynd/Aðsend

Þýska flugfélagið Condor hefur hefur ákveðið að hefja áætlunarflug til Akureyrar og Egilsstaða sumarið 2023. Flogið verður frá maí og til loka október í hverri viku bæði milli Frankfurt og Akureyrarflugvallar og milli Frankfurt og Egilsstaðaflugvallar.

Kemur fram í tilkynningu að þetta sé í fyrsta sinn sem flugfélagið Condor flýgur til Íslands.

„Ísland er einn af vinsælustu áfangastöðunum í norðri,“ er haft eftir Teckentrup, framkvæmdastjóra Condor í tilkynningunni.

„Við hlökkum til að bjóða viðskiptavinum okkar að uppgötva þennan fjölbreytta og fallega áfangastað. Með tengingu til Akureyrar og Egilsstaða erum við að bregðast við eftirspurn frá fjölmörgum ferðaþjónustuaðilum sem bjóða upp á ferðir á Norður- og Austurlandi.“

„Ánægjulegt“ að þessir áfangastaðir hafi orðið fyrir valinu

Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri innanlandsflugvalla hjá Isavia, segir það afar ánægjulegt að Condor hafi valdið Akureyri og Egilsstaði sem fyrstu áfangastaði sína á Íslandi.

„Þessi ákvörðun Condor er afrakstur af öflugu kynningarstarfi Austurbrúar, Isavia Innanlandsflugvalla, Íslandsstofu og Markaðsstofu Norðurlands þar sem áhersla hefur verið lögð á þróun fleiri gátta inn í Ísland. Þá hefur framlag íslenskra stjórnvalda til verkefnisins skipt máli. Öll þessi vinna er farin að bera ávöxt og tökum við fagnandi á móti Condor.“

Condor hefur verið starfrækt í rúmlega 66 ár. Það flýgur með ríflega níu milljón farþega árlega frá stærstu flugvöllum í Þýskalandi, Sviss og Austurríki til um níutíu áfangastaða víðs vegar um Evrópu, Bandaríkin og Afríku.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK