Tvö fjölbýlishús með 87 íbúðum rísa við Skógarveg

Fyrsta skóflustundan var tekin á föstudag.
Fyrsta skóflustundan var tekin á föstudag. Ljósmynd/ Róbert Reynisson

Lokaáfangi er hafinn í uppbyggingu leiguíbúða fyrir 60 ára og eldri, sem tengjast þjónustumiðstöðinni Sléttu við Sléttuveg í Reykjavík. Tvö ný fjölbýlishús rísa nú við Skógarveg með 87 íbúðum, sem eru hluti af lífsgæðakjörnum Sjómannadagsráðs, Naustavarar og Hrafnistu. 

Aríel Pétursson formaður Sjómannadagsráðs og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í Reykjavík voru viðstaddir þegar Guðbjörn Guðjónsson gröfumaður hjá undirverktaka Þarfaþings tók fyrstu skóflustunguna vegna framkvæmdanna á föstudag að viðstöddum aðstandendum framkvæmdanna.

Uppbygging lífsgæðakjarnans er samstarfsverkefni Sjómannadagsráðs, Reykjavíkurborgar og ríkisins. Framkvæmdir annast Þarfaþing hf. sem skilar íbúðunum fullbúnum til Naustavarar og er ætlað að því verði lokið seinni hluta ársins 2024.

Sambærilegt íbúðunum við Sléttuveg 27

Sjómannadagsráð hefur þegar til útleigu, í gegnum dótturfyrirtæki sitt, Naustavör, 60 íbúðir við Sléttuveg 27. Verða því alls 147 íbúðir fyrir þennan aldurshóp til útleigu í lífsgæðakjarnanum að framkvæmdum loknum.

Gæði og búnaður íbúðanna verður sambærilegur og í núverandi íbúðum við Sléttuveg. Innangengt er úr öllum húsunum í þjónustumiðstöð á Sléttuvegi. 

Hrafnista annast rekstur hjúkrunarheimilis með 99 íbúðum auk þjónustumiðstöðvarinnar Sléttunnar, sem er samstarfsverkefni við aðrar félagsmiðstöðvar eldri borgara í Reykjavík.

Hugmyndafræði lífsgæðakjarnans snýst um það að reka samhliða hjúkrunarheimili, leiguíbúðir og þjónustumiðstöðvar þar sem eldra fólki eru búnar aðstæður til að „hámarka lífsgæði sín,“ að því er fram kemur í tilkynningu frá Sjómannadagsráði. 

Hér má sjá teikningar af íbúðunum.
Hér má sjá teikningar af íbúðunum.

Hraðari uppbygging þegar allir leggist á eitt

„Afar ánægjulegt er að geta með samhentu átaki Sjómannadagsráðs, Reykjavíkurborgar og ríkisins, stuðlað að jafnvíðtækri uppbyggingu leiguíbúða fyrir aldraða. Framkvæmdin endurspeglar hvernig slíkt samstarf stuðlar að meiri lífsgæðum og hraðari uppbyggingu, fremur en að hver vinni í sínu horni,“ er haft eftir Sigurði Garðarssyni, framkvæmdastjóra Sjómannadagsráðs og Naustavarar.

Nýjar íbúðir Naustavarar verða í tveimur samtengdum húsum við Skógarveg 4 og 10. Íbúðirnar eru ýmist tveggja eða þriggja herbergja á bilinu 54 til 90 fermetrar, en þrjár íbúðir verða um 120 fermetrar að stærð.

Í íbúðunum er allt aðgengi gott og þær sérhannaðar með þarfir eldra fólks í huga. Hurðaop og gangar eru breiðari en gengur og gerist, einnig eru baðherbergi og eldhús sérhönnuð svo auðvelt sé að nota ýmiss konar stuðningstæki. Reiknað er með að fyrstu íbúðirnar verði tilbúnar til afhendingar um mitt árið 2024.

Undir báðum húsum verður ein stór bílageymsla þar sem stæði verða leigð út sérstaklega. Einnig verða útistæði við húsin og þar verða föst stæði einnig leigð út til íbúa með sama fyrirkomulagi og í leiguíbúðunum sem eru við Sléttuveg.

„Framkvæmdin endurspeglar hvernig samstarf stuðlar að meiri lífsgæðum og hraðari …
„Framkvæmdin endurspeglar hvernig samstarf stuðlar að meiri lífsgæðum og hraðari uppbyggingu, fremur en að hver vinni í sínu horni,“ segir Sigurður Garðarsson, framkvæmdastjóri Sjómannadagsráðs og Naustavarar. Ljósmynd/ Róbert Reynisson
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK