Diljá til Samtaka ferðaþjónustunnar

Diljá Matthíasardóttir.
Diljá Matthíasardóttir. Ljósmynd/Samtök ferðaþjónustunnar

Diljá Matthíasardóttir hefur verið ráðin hagfræðingur Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) og þegar hafið störf hjá samtökunum.

Diljá hefur lokið BS.c. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og er auk þess með meistaragráðu í hagfræði frá Barcelona School of Economics með áherslu á þjóðhagfræði og fjármálamarkaði.

Starfaði í eignastýringu hjá Arion banka

Diljá starfaði áður sem hagfræðingur á hagfræði- og peningastefnusviði Seðlabanka Íslands og sem sérfræðingur í eignastýringu fagfjárfesta hjá Arion banka. Þá starfaði hún einnig við dæmatímakennslu við hagfræðideild Háskóla Íslands. Diljá er stjórnarmeðlimur og ein stofnenda HKH – Hagsmunafélags kvenna í hagfræði.

Samtök ferðaþjónustunnar eru heildarsamtök fyrirtækja í ferðaþjónustu á Íslandi. Samtökin eru stofnuð árið 1998 og eru aðilar að Samtökum atvinnulífsins. Um 400 fyrirtæki í ferðaþjónustu um land allt eru aðilar að SAF

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK