Katrín Olga ráðin framkvæmdastjóri

Katrín Olga Jóhannesdóttir.
Katrín Olga Jóhannesdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Landsnet hefur stofnað dótturfélag sem hefur það hlutverk að setja á fót og reka heildsölumarkað raforku á Íslandi. Katrín Olga Jóhannesdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri félagsins.

Katrín Olga hefur áratuga reynslu sem stjórnandi og stjórnarmaður í íslensku atvinnulífi. Hún var formaður Viðskiptaráðs Íslands og var fyrsta konan til að sinna því hlutverki.  Hún segir það spennandi að fá tækifæri til að móta og innleiða nýjar aðferðir í orkuviðskiptum á Íslandi og hlakkar til að takast á við það verkefni, segir í tilkynningu frá Landsneti. 

Katrín Olga er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands með meistaragráðu frá University of Southern Denmark og stundaði viðbótarnám frá London Business School. Katrín Olga mun hefja störf um mánaðamótin.

Guðmundur I. Ásmundsson, stjórnarformaður nýja fyrirtækisins og forstjóri Landsnets, segir markaðinn mikilvægan m.a. þegar kemur að loftslagsmálum.

Skilvirkt aðgengi nauðsynlegt

„Virkir orkumarkaðir eru mikilvægir í orkuöryggi þjóða og það sama gildir hér á landi. Skilvirkt aðgengi að markaði er nauðsynlegt en markaðsumhverfi orku er að breytast hratt í þá átt að notendur geta tekið þátt í rekstri kerfisins og fengið greitt fyrir þá þjónustu. Það er einungis hægt með gagnsæjum verðum, þannig að orka komi inn á kerfið og sé nýtt á réttum tíma. Orkumarkaðir eru einnig mikilvægir fyrir fjárfestingar í framleiðslu á orku en nýir framleiðendur, jafnvel með nýja tækni eins og vindorku, reiða sig á gagnsæ orkuverð til að meta hvort fjárfestingin sé hagkvæm. Fyrir okkur sem þjóð er þetta tvennt mjög mikilvægt í baráttunni við loftslagsvána en grænbókin Staða og áskoranir í orkumálum, sem kom út nýlega, bendir á að tvöfalda þurfi orkuframleiðslu á næstu átján árum. Mögulega komumst við af með minna ef notendur geta tekið þátt í orkuviðskiptunum og hagrætt í sinni notkun,“ segir hann í tilkynningunni. 

„Það er mjög spennandi kafli framundan í sögu íslenskra orkuviðskipta þar sem bæði notkun og framleiðsla mun verða fjölbreyttari og flóknari en áður. Markmiðið með heildsölumarkaðnum er að skila neytendum hagkvæmasta verði hverju sinni en um leið tryggja orkuöryggi, stöðugleika og gagnsæi orkuverðs. Það er frábært tækifæri að taka þátt í að innleiða nýjar aðferðir í þessum efnum“ segir Katrín Olga í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK