Rekstur gagnaversins hefst á fyrri hluta næsta árs

Framkvæmdastjórn atNorth ásamt verktökum.
Framkvæmdastjórn atNorth ásamt verktökum.

Framkvæmdir við byggingu gagnavers atNorth við Hlíðarvelli á Akureyri ganga vonum framar samkvæmt tilkynningu frá atNorth.

Framkvæmdir hófust um miðjan júlí og stefnt er að því að hefja reksturinn fyrir mitt ár 2023. Fyrsti áfangi gagnaversins er um 2.500 fermetrar í tveimur samtengdum byggingum, en fullbyggt verður gagnaverið í fimm byggingum. Að auki er gert ráð fyrir þremur skrifstofu- og þjónustuhúsum á lóð atNorth.

Fyrsti áfangi var reistur á fjórum mánuðum.
Fyrsti áfangi var reistur á fjórum mánuðum.


„Gagnaverið er það fyrsta sinnar gerðar á svæðinu og mun nýtast viðskiptavinum atNorth á margvíslegan hátt – sérstaklega þeim sem vilja tryggja landfræðilegann aðskilnað gagna sem eru þegar hýst í öðrum gagnaverum,“ segir m.a. í tilkynningunni.

Vaktin er athygli á því að allt timbur í burðarvirki kemur úr sjálfbærum skógum á Norðurlöndum og steinullin frá Steinull á Sauðarkróki kemur úr umhverfisvottaðri framleiðslu. Markmiðið sé að lágmarka kolefnisspor framkvæmdarinnar með innlendum byggingalausnum og árvekni gagnvart umhverfinu.

Þá leiti atNorth nú samstarfsaðila til að nýta varmamyndun í gagnaverinu til frekari verðmætasköpunar í grænum iðnaði sem gæti minnkað kolefnisfótspor verkefnisins enn frekar.

Eyjólfur Magnús Kristinsson forstjóri atNorth fer yfir sviðið.
Eyjólfur Magnús Kristinsson forstjóri atNorth fer yfir sviðið.

„Framkvæmdir hafa gengið ótrúlega vel og maður trúir því varla, að í dag séu rétt um fjórir mánuðir frá samþykkt deiliskipulags fyrir svæðið. Sú staðreynd er góður vitnisburður um ykkur og gerir Akureyri að frábærum kosti fyrir þá sem vilja ráðast í uppbyggingu af hvaða tagi sem er,“ er haft eftir forstjóranum Eyjólfi Magnúsi Kristinssyni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK