Origo vill greiða 24 milljarða króna til hluthafa

Jón Björnsson er forstjóri Origo.
Jón Björnsson er forstjóri Origo. Kristinn Magnússon

Stjórn Origo hefur lagt fram tillögu um að greiða út 24 milljarða króna til hluthafa félagsins með lækkun hlutafjár. Þetta kemur til eftir að félagið seldi hugbúnaðarfyrirtækið Tempo út úr samstæðunni fyrir ríflega 28 milljarða króna til Diversis Tempo Holdings í byrjun október.

Boðað hefur verið til hluthafafundar í félaginu 1. desember nk. eftir því sem fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Origo átti um 40% hlut eftir í Tempo fyrir söluna, en áætlaður söluhagnaður félagsins var um 22,8 milljarðar króna.

Í greinargerð með tillögu stjórnar segir að í tengslum við fyrirhugaða útgreiðslu með lækkun hlutafjár geri stjórn félagsins ráð fyrir að á bilinu 24-26 milljarðar króna verði greiddir út til hluthafa, þar af fyrrnefndir 24 milljarðar með lækkun hlutafjár. Lagt er til að um 500 milljónir króna af söluandvirðingu verði nýttar til stofnunar starfsþróunar- og menntasjóðs fyrir núverandi og tilvonandi starfsmenn. Þá er lagt til að 1-3 milljörðum króna verði varið í hraðari styrkingu á tækniumhverfi félagsins, hraðari þróun á völdum hugbúnaðarvörum og mögulega styrkingu á vöruúrvali á skilgreindum kjarnasviðum félagsins í hugbúnaði.

„Eftir söluna á Tempo er lausafjárstaða félagsins afar sterk og eiginfjárhlutfall um 83,96%. Það er mat stjórnar að rétt sé að færa hlutaféð niður og koma stærstum hlut þessa söluandvirðis til hluthafa félagsins,“ segir í greinargerðinni.

„Fjárhagsstaða félagsins verður eftir sem áður afar sterk og eiginfjárhlutfall enn hátt eða tæplega 56,72% verði tillaga stjórnar samþykkt. Er það mat stjórnar að eftir útgreiðslu lækkunarfjárhæðarinnar verði félagið mjög vel sett til þess að nýta og fjármagna þau vaxtar- og verðmætasköpunartækifæri sem blasa við stjórnendum félagsins.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK