Kristín tekur sæti Berglindar sem formaður Samorku

Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar og nýr formaður stjórnar Samorku.
Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar og nýr formaður stjórnar Samorku. Ljósmynd/Aðsend

Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, var í dag kjörin stjórnarformaður Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja. Hún tekur við af Berglindi Rán Ólafsdóttur, framkvæmdastýru Orku náttúrunnar. Samhliða þessu taka þrjú ný sæti í stjórn samtakanna, þau Björk Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála HS Orku, Páll Erland, forstjóri HS Veitna, og Magnús Kristjánsson, framkvæmdastjóri Orkusölunnar. 

Í stjórn Samorku sitja jafnframt áfram þau Hrefna Hallgrímsdóttir, forstöðumaður hitaveitu hjá Veitum, Sigurður Þór Haraldsson, veitustjóri Selfossveitna, og Steinn Leó Sigurðsson, sviðstjóri Veitu- og framkvæmdasviðs hjá Skagafjarðarveitum.

Þá voru þau Eyþór Björnsson, forstjóri Norðurorku, og Harpa Pétursdóttir, stjórnandi málefna haghafa og stjórnsýslu hjá Orku náttúrunnar, kjörin varamenn í fyrsta sinn. Fyrir eru Aðalsteinn Þórhallsson, Jón Trausti Kárason, forstöðumaður vatns- og fráveitu hjá Veitum, og Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, varamenn í stjórn.

Stjórn Samorku er því þannig skipuð að loknum aðalfundi 2023:

Aðalmenn:

  • Kristín Linda Árnadóttir, formaður stjórnar
  • Björk Þórarinsdóttir, HS Orku
  • Páll Erland, HS Veitum
  • Magnús Kristjánsson, Orkusölunni
  • Steinn Leó Sveinsson, Skagafjarðarveitum
  • Sigurður Þór Haraldsson, Selfossveitum
  • Hrefna Hallgrímsdóttir, Veitum

Varamenn:

  • Aðalsteinn Þórhallsson, HEF
  • Eyþór Björnsson, Norðurorka
  • Harpa Pétursdóttir, Orka náttúrunnar
  • Jón Trausti Kárason, Veitum
  • Hörður Arnarson, Landsvirkjun
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK