Hákon L. Akerlund er nýr öryggisstjóri hjá Arion banka.
Frá þessu er greint í tilkynningu.
Hákon starfaði áður hjá Landsbankanum við öryggismál á upplýsingatæknisviði. Þar á undan starfaði hann hjá EJS, eða frá árinu 1999.
Þá gegndi hann starfi aðstoðarmanns sendiherra Íslands í sendiráðinu í Stokkhólmi.