Kristján Andrésson hefur tekið við starfi forstöðumanns rekstrar- og sjálfbærniáhættu hjá Arion banka. Kristján kemur til Arion frá Íslandsbanka þar sem hann starfaði sem sérfræðingur í regluvörslu og áhættustýringu frá árinu 2018. Á árunum 2009 til 2017 starfaði Kristján hjá fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka.
Kristján er með B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík, meistaragráðu í hagfræði og samskiptum frá University of Lugano, í Sviss og próf í verðbréfaviðskiptum.