Fura Ösp Jóhannesdóttir hefur tekið sæti í stjórn hjá sköpunarstofunni Brandenburg, sem stjórnarformaður. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Brandenburg.
Þar segir að Fura hafi átt farsælan feril í hönnunarheiminum. Hún er í dag sjálfstætt starfandi ráðgjafi og hönnuður, en starfaði síðast hjá einni virtustu auglýsingastofu heims, HUGE, sem yfirsköpunarstjóri. Þar áður var hún yfirhönnunarstjóri hjá Publicis Sapient.
Lengst af starfaði hún þó hjá R/GA í New York, en þar fór hún fyrir hönnunarteymum víða um heim, m.a. í London, Stokkhólmi og Tyrklandi.
Í þessum störfum hefur Fura unnið fyrir mörg stærstu vörumerki heims og leitt skapandi vinnu og stefnumótun, má þar nefna Nike, Samsung, Walmart, Volvocars, Galleries Lafayetta. Auk þess hefur hún verið formaður dómnefnda í mörgum virtustu verðlaunum hönnunar-, sköpunar- og markaðsmála, má þar nefna Cannes Lions, Clios, One Show, Eurobest og D&AD, en þar hefur hún setið í stjórn frá árinu 2020.
Í tilkynningunni er haft eftir Braga Valdimari Skúlasyni, framkvæmdastjóra Brandenburg, að fyrirtækið sé einstaklega ánægt með að fá Furu til liðs við sig.
Þá kemur þar fram að Arnar Halldórsson, sköpunarstjóri og einn eigenda stofunnar, hafi tekið sæti í stjórn HönnunarMars og hönnunarstjórinn Þorleifur Gunnar Gíslason verið valinn í dómnefnd EuroBest, sem eru ein virtustu hönnunarverðlaun Evrópu