Fengu allir sokka í tilefni mottumars

Afhending sokkanna um borð í Snæfelli EA 310. Fv.: Anna …
Afhending sokkanna um borð í Snæfelli EA 310. Fv.: Anna María Kristinsdóttir, Óli Hjálmar Ólason , Hafþór Máni Baldursson og Ásgeir Guðbjartur Pálsson, Ljósmynd/Samherji

Allir karlar sem starfa hjá Samherja fá afhenta sokka í tilefni af „mottumars“ en útgerðin hefur um árabil stutt við þetta átak Krabbameinsfélagsins sem tileinkað er körlum með krabbamein. Að þessu sinni er lögð áhersla á gildi hreyfingar sem forvarnar gegn krabbameinum hjá körlum en um leið aflar félagið fjár fyrir starfsemi félagsins, meðal annars með sölu „mottumars“-sokka.

„ Við erum afar þakklát Krabbameinsfélaginu fyrir þetta átak. Krabbamein er sjúkdómur sem snertir allar fjölskyldur fyrr eða síðar með einhverjum hætti. Þess vegna er mikilvægt að gera allt sem hægt er til að stemma stigu við sjúkdómnum, meðal annars með Mottumars. Þetta metnaðarfulla árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins er kærkomið tækifæri til að taka höndum saman í vitundarvakningu um krabbamein,“ segir Anna María Kristinsdóttir mannauðsstjóri Samherja í færslu á vef útgerðarinnar.

Í færslunni er vakin athygli á að þriðji hver karlmaður greinist með krabbamein einhvern tímann á lífsleiðinni. Samkvæmt tölfræðilegri samantekt frá árunum 2017 til 2022 greindust 937 karlar árlega með krabbamein og á sama tímabili létust 325 karlar árlega úr krabbameinum. Þótt miklar framfarir hafi átt sér stað í meðferð krabbameina á undanförnum árum og fimm ára lífshorfur hafi aukist verulega er staðreyndin sú að fjórðungur dánarmeina er af völdum krabbameina.

Í fræðsluefni Krabbameinsfélagsins er undirstrikað að reglubundin hreyfing hafi ótvírætt gildi fyrir almenna heilsu og vellíðan. Rannsóknir hafi með afgerandi hætti sýnt fram á að hreyfing dragi úr líkum á ákveðnum krabbameinum og margvíslegum öðrum sjúkdómum.

Sokkum var einnig úthlutað í ÚA: Fv. Sólveig Sigurjónsdóttir, Björgvin …
Sokkum var einnig úthlutað í ÚA: Fv. Sólveig Sigurjónsdóttir, Björgvin Árni Gunnarsson, Alger Capin, Andri Rósinberg Antonsson. Ljósmynd/Samherji
Birkir Freyr Elvarsson í ÚA var sáttur með sitt par.
Birkir Freyr Elvarsson í ÚA var sáttur með sitt par. Ljósmynd/Samherji
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 1.306 kg
Samtals 1.306 kg
18.5.24 Fíi ÞH 11 Grásleppunet
Grásleppa 818 kg
Samtals 818 kg
18.5.24 Sigrún GK 97 Grásleppunet
Grásleppa 1.339 kg
Samtals 1.339 kg
18.5.24 Jónína Brynja ÍS 55 Lína
Ýsa 1.916 kg
Þorskur 46 kg
Skarkoli 39 kg
Ufsi 29 kg
Langa 4 kg
Karfi 2 kg
Samtals 2.036 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 1.306 kg
Samtals 1.306 kg
18.5.24 Fíi ÞH 11 Grásleppunet
Grásleppa 818 kg
Samtals 818 kg
18.5.24 Sigrún GK 97 Grásleppunet
Grásleppa 1.339 kg
Samtals 1.339 kg
18.5.24 Jónína Brynja ÍS 55 Lína
Ýsa 1.916 kg
Þorskur 46 kg
Skarkoli 39 kg
Ufsi 29 kg
Langa 4 kg
Karfi 2 kg
Samtals 2.036 kg

Skoða allar landanir »