Ný stytta afhjúpuð af Elísabetu II. drottningu

Elísabetar II. er minnst víða um England.
Elísabetar II. er minnst víða um England. AFP

Ný stytta af Elísabetu II. Bretlandsdrottningu heitinni hefur litið dagsins ljós. Styttan var afhjúpuð á afmælisdegi drottningar 21. apríl en hún hefði orðið 98 ára. 

Styttan er í enska bænum Oakham sem er í tæplega þriggja klukkustundar akstursfjarlægð norður frá Lundúnum. Oakham er afar sjarmerandi enskur smábær þar sem múrsteinshlaðin hús fá að njóta sín.

Mikil hjartahlýja einkennir styttuna og athygli vekur að smáhundar drottningar fá að vera með. Elísabet drottning elskaði corgi-hundana sína innilega og voru þeir gjarnan með á myndum með einum eða öðrum hætti. 

Styttan af Elísabetu drottningu er afskaplega lífleg og hjartnæm.
Styttan af Elísabetu drottningu er afskaplega lífleg og hjartnæm. Skjáskot/Instagram
Normanton-kirkjan. Eitt kennileita Oaklands.
Normanton-kirkjan. Eitt kennileita Oaklands. Unsplash.com/Tolu
Drottningin elskaði corgi-hundana sína.
Drottningin elskaði corgi-hundana sína. AFP
Elísabet II. sat oft fyrir með hundunum sínum.
Elísabet II. sat oft fyrir með hundunum sínum. AFP
Drottningin úti að ganga með hundana árið 1969.
Drottningin úti að ganga með hundana árið 1969. AFP
Drottningin á leið til veislu. Corgi-hundurinn fær að fljóta með.
Drottningin á leið til veislu. Corgi-hundurinn fær að fljóta með. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert