Tugþúsundir með ólöglegt streymi

Mikið er horft á útsendingar frá Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. …
Mikið er horft á útsendingar frá Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Ekki er þó víst að allir geri það eftir löglegum leiðum. AFP/Paul Ellis

Áætlað er að um það bil 25-30 prósent heimila hér á landi séu með áskrift að IPTV-efnisveitum sem dreifa ólöglega aðgangi að sjónvarpsstöðvum um allan heim.

Fulltrúar Stöðvar 2 og Símans segja í samtali við Morgunblaðið að útbreiðsla IPTV hafi aukist mjög síðustu ár og þessi þróun kunni að hafa áhrif á framleiðslu innlends efnis og kaup á sjónvarpsréttindum, til dæmis á íþróttaviðburðum.

„Áhrifin eru víðar en bara hjá okkur, þetta hefur áhrif á alla keðjuna,“ segir Eiríkur Stefán Ásgeirsson, forstöðumaður hjá Stöð 2. 

Hægt er að nálgast umfjöllunina í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert