Móðir sem grunuð var um að hafa ráðið sex ára syni sínum bana á heimili þeirra við Nýbýlaveg í lok janúar og gert tilraun til að svipta eldri son sinn lífi, hefur játað sök. Ríkisútvarpið greinir frá.
Konan, sem er um fimmtugt, var annars vegar ákærð fyrir manndráp og stórfellt brot í nánu sambandi, og hins vegar tilraun til manndráps og stórfellt brot í nánu sambandi. Hefur hún sætt gæsluvarðhaldi síðan málið kom upp.
Í ákæru málsins kemur fram að konan hafi svipt son sinn lífi með að setja kodda yfir andlit hans og með báðum höndum þrýst koddanum yfir vit hans og þrýst á háls hans og efri hluta brjóstkassa hans og ekki linað þau tök fyrr en drengurinn var látinn. Lést hann af völdum köfnunar að því er fram kemur í ákærunni.
Þá er hún sögð hafa farið inn í svefnherbergi eldri drengsins þar sem hann lá sofandi á maganum og tekið fyrir vit hans með annarri hendi og í hnakka hans með hinni. Þrýsti hún andliti hans niður í rúmið þannig að hann gat ekki andað. Vaknaði drengurinn við þessa atlögu og gat losað sig úr taki móðurinnar.
Ákæra var gefin út í síðustu viku og þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Var þinghaldið lokað.
Rúv greinir frá því að konan hafi játað sök en hún beri við ósakhæfi á verknaðarstundu.
Fyrir hönd eldri drengsins er farið fram á að móðirin greiði honum 10 milljónir í bætur, en auk þess fer faðir drengjanna fram á 8 milljónir í bætur.