Katrín mætir á Græna hattinn á mánudag

Katrín Jakobsdóttir mætir á forsetafund Morgunblaðsins og mbl.is á Akureyriþ
Katrín Jakobsdóttir mætir á forsetafund Morgunblaðsins og mbl.is á Akureyriþ Samsett mynd

For­seta­fund­ir Morg­un­blaðsins og mbl.is halda áfram göngu sinni en á mánudag mæt­ir Katrín Jakobsdóttir á for­seta­fund á Akureyri. 

Fundurinn verður haldinn klukkan 19.30 og eru allir Akureyringar og nærsveitungar velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

Fundirnir hafa hingað til verið mjög fjölsóttir og er fólk hvatt til að mæta tímanlega.

Ný skoðanakönnun kynnt

Tveir álitsgjafar verða fengnir í upphafi fundar til að rýna í glænýja skoðanakönnun Prósents sem kemur út á mánudaginn og svo munu blaðamennirnir Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson spyrja Katrínu spurninga um forsetaembættið.

Í kjölfar þess verður opnað fyrir spurningar úr sal frá fundargestum.

Þegar hefur Morgunblaðið haldið forsetafundi á Ísafirði, Egilsstöðum og Selfossi og verður þetta því síðasti landsfjórðungurinn sem Morgunblaðið og mbl.is eiga eftir að sækja heim til þess að halda forsetafund. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert