Straumflugan Svört Hólmfríður er ekki mjög þekkt meðal laxveiðimanna. Það er frekar að hún sé í boxum silungsveiðimanna. En þeir Svend Richter og Kolbeinn Grímsson áttu stað og stund fyrir þessa straumflugu.
Ef skyndilega hellirigndi þá litu þeir gjarnan hvor á annan og spurt var í báðar áttir. „Er komið að því?“ Þá var það segin saga að sú svarta fór undir og oftar en ekki gaf hún.
Svend Richter var gestur Dagmála á dögunum og þar sem sól hækkar nú hratt á lofti og vorið er farið að hnykla vöðvana var ekki hægt annað en að taka smá spjall um veiði. Svend bíður eftir nýju hné og það takmarkar um þessar stundir þær veiðilendur sem hann sækir.
Í spjallinu er farið vítt og breitt og velt upp spurningum á borð við stöðuna í veiðinni og af hverju svo margir tannlæknar hafi stundað veiðiskap.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |