Stal senunni í kjól frá 1996

Naomi Campbell á rauða dreglinum í Cannes.
Naomi Campbell á rauða dreglinum í Cannes. AFP/Valery HACHE

Sjálfbærni er í tísku og það hefur ekki farið fram hjá ofurfyrirsætunni Naomi Campbell. Fyrirsætan vakti mikla athygli á kvikmyndahátíðinni í Cannes í vikunni í kjól sem hún klæddist fyrst árið 1996. 

Kjóllinn er frá franska hátískumerkinu Chanel en það var tískugoðsögnin Karl Lagerfeld sem var listrænn stjórnandi Chanel þegar kjóllinn var hannaður. Það var Campbell sjálf sem sýndi kjólinn á tískupallinum árið 1996. 

Naomi Campbell var ekki í undirkjól undir kjólnum.
Naomi Campbell var ekki í undirkjól undir kjólnum. AFP/Valery HACHE

Þó kjóllinn sé að nálgast þrítugsaldurinn mætti halda að Campbell hefði fengið hann beint af tískupallinum á dögunum, svo vel á hann við í dag. Ástæðan er sú að tíska tíunda áratugarins hefur svifið yfir vötnum undanfarin ár. Örlitlar breytingar voru gerðar á kjólnum en Campbell og stílisti hennar Law Roach ákváðu að sleppa síða undirkjólnum. Í dag þykir ekkert mál að klæðast efnislitlum nærpjötlum undir hálfgegnsæjum kjól. 

Naomi Campbell var ekki sú eina sem klæddist Chanel í Cannes í vikunni. Íslenska leikkonan Elín Hall gerði það einnig. 

Um leið og Campbell klæddist kjólnum í Cannes birti hún gamlar myndir af sér í kjólnum eins og sjá má á Instagram-síðu hennar hér að neðan. 

Naomi Campbell Stílistinn Law Roach sá um að klæða Naomi …
Naomi Campbell Stílistinn Law Roach sá um að klæða Naomi Campbell. AFP/Antonin THUILLIER



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál