„Það var áberandi hvað þær náðu að spila í háum gæðaflokki framan af móti,“ sagði Helena Ólafsdóttir, umsjónarmaður Bestu markanna, í upphitunarþætti Dagmála fyrir Bestu deild kvenna í knattspyrnu þegar rætt var um FH.
FH er spáð 7. sæti deildarinnar í spá íþróttadeildar Árvakurs en liðið hafnaði í sjötta sæti deildarinnar á síðustu leiktíð.
„Það er jákvætt hjá FH að það eru ekki jafn margir leikmenn hjá þeim núna á láni eins og í fyrra,“ sagði Helena.
„Þær gætu alveg endað í fimmta eða fjórða sæti,“ sagði Helena meðal annars.