Fyrsta mark Hilmis kom í Íslendingaslag

Hilmir Rafn Mikaelsson skoraði í dag.
Hilmir Rafn Mikaelsson skoraði í dag. Ljósmynd/Venezia

Hilmir Rafn Mikaelsson er kominn á blað í norsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu fyrir Kristiansund en fyrsta markið kom gegn Ham/Kam í dag.

Hilmir var í byrjunarliði Kristiansund líkt og Brynjólfur Darri Willumsson en Hilmir skoraði jöfnunarmark Kristiansund á 29. mínútu og fór svo af velli á 78. mínútu. Brynjólfur spilaði allan leikinn.

Viðar Ari Jónsson kom inn á hjá Ham/Kam á 12. mínútu en Brynjar Orri Bjarnason sat á bekknum

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert